hvað ertu að spá???

the truth about nothing

05.08.2008 20:33:55 / Jóna María

Eftir Versló

Hæhæ

Það eru svosem ekki miklar fréttir héðan, ég var að passa svolítið mikið síðustu helgi hana Amöndu litlu hún er svo mikið æði og svo auðveld, það er svo minnsta mál í heimi að passa hana :d

svo fóru ég og Eva í partý til Heiðrúnar á sunnudagskvöldið, Rósa æskuvinkona mín kom með og þetta var í fyrsta skipti sem við djömmuðum saman, nema því miður þá týndi maður megninu af liðinu niðrí bæ nema náttúrulega Heiðrúnu þar sem að við dönsuðum saman eiginlega allann tímann á kaffi akureyri, ég elska að DANSA, það er svo gaman 8)

ég er ekki byrjuð að vinna ennþá eftir að ég hætti hjá póstinum, ég er reyndar ekki farin að leita mér að neinni vinnu þannig að ég get svosem ekki kvartað :$
en þetta er búið að vera fínt sumar, eyddi viku í Reykjavík og svo viku í sumarbústað í Borgarfirði með mömmu, Dagný og Evu og börnunum þeirra, þar var rosa gaman. Svo er ég bara búin að vera á Akureyri og búin að fara í þá nokkra göngutúrana með Evu og Amöndu ;)

Ég var að búa til smá myndaalbúm hérna á síðunni, linkurinn er hérna hægra meginn á síðunni, heitir "Sumarið"  ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.06.2008 09:57:41 / Jóna María

Tattú!!!

ég er komin með tattú!! lét loksins verða af því, langþráður draumur :lol:

» 7 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  4  Alls: 36765
Dagatal
janúar - 2012
S M Þ M F F L
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031
FyrriNæsti
Myndasöfn
myndirnar mínar